Stök frétt

Undanfarið hefur Umhverfisstofnun, ásamt samstarfshópi skipuðum fulltrúum frá Vesturbyggð, Ísafjarðarbæ, umhverfis- og auðlindaráðuneyti, forsætisráðuneyti, Landgræðslusjóðs og mennta- og menningarmálaráðuneytis, unnið að undirbúningi stofnun þjóðgarðs á sunnanverðum Vestfjörðum skv. 47. gr. náttúruverndarlaga nr. 60/2013.  Samkvæmt 2. mgr. 39.gr. sömu laga skal Umhverfisstofnun gera drög að friðlýsingarskilmálum og leggja fyrir landeigendur og aðra rétthafa lands, viðkomandi sveitarfélög og aðra sem hagsmuna eiga að gæta.

Umhverfisstofnun leggur hér með fram tillögu að friðlýsingaskilmálum fyrir þjóðgarð á sunnanverðum Vestfjörðum ásamt tillögu að mörkum svæðisins.

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til og með 26. maí 2021.
Frekari upplýsingar hér.

Athugasemdum við tillöguna má skila með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða senda með pósti til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.