Stök frétt

Mynd: Veiðivötn, Veiðifélag Landmannaafréttar
Umhverfisstofnun auglýsir tillögu að nýju starfsleyfi fyrir Veiðifélag Landmannaafréttar fyrir eldi að Götu í Rangárþingi ytra. Heimilt er að ala þar laxfiskaseiði en lífmassi í stöðinni skal ekki vera meira en 50 kg á hverjum tíma. 

Tillaga að starfsleyfi ásamt umsóknargögnun frá rekstraraðila er nú aðgengileg á vefsíðu Umhverfisstofnunar.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra tók ákvörðun um að stöðin var ekki háð mati á umhverfisáhrifum sbr. 6. gr. laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is). Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 30. apríl 2021. Á þeim tíma gefst hverjum sem er tækifæri til að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.

Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Tengd skjöl:
Tillaga að starfsleyfi
Umsókn um starfsleyfi