Stök frétt

Bann við afhendingu á burðarpokum úr plasti

Á morgun, 21. apríl milli 8:30 – 9:30 mun Gró Einarsdóttir, sérfræðingur á sviði loftlagsmála og græns samfélags hjá umhverfisstofnun halda veffyrirlestur um bann við afhendingu á burðarpokum úr plasti.

Bannið tók gildi í upphafi árs. Bannið er bæði víðtækara og frjálslegra en margir gera sér grein fyrir. Í erindi sínu fer sérfræðingur Umhverfisstofnunnar yfir hvað felst í banninu, hvað sé leyfilegt og hvað ekki og hvaða lausna er hægt að leita. Fjallað verður um hvað plast er, hvað burðarpokar eru og hvað er átt við með afhendingu á sölustað vara.

Sem sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun hefur Gró svarað fyrirspurnum fyrirtækja um bannið á afhendingu á burðarpokum úr plasti og hefur í þeim tilgangi kynnt sér málefnin ítarlega. Gró er einnig doktor í félagssálfræði, og hennar sérsvið snýst um hvernig við aukum líkurnar á því að fólk breyti umhverfistengdri hegðun. Gró er vinsæll fyrirlesari og hefur víðtæka reynslu af því að halda erindi fyrir ólíka hópa.

Umhverfisstofnun sér um upplýsingagjöf og eftirlit með ákvæðunum við banninu á afhendingu á burðarpokum úr plasti.

Viðburðurinn er skipulagður af Samtökum verslanna og þjónustu og skráning fer fram hér:
https://svth.is/vidburdir/plastpokar-bann/