Stök frétt

Lærum hvert af öðru og öxlum ábyrgð 

Miðvikudaginn 26. maí kl. 14:00 á vefnum


Í aðgerðaáætlun um plastmálefni eru fyrirtæki í íslensku atvinnulífi meðal annars hvött til að leggja áherslu á ábyrga notkun plasts í stefnum sínum, nýta þær lausnir sem til eru og skapa nýjar lausnir þar sem það er mögulegt. 

Grænvangur er ábyrgur fyrir aðgerð um „ábyrga notkun plasts í atvinnulífinu“ í samstarfi við samtök, fulltrúa og félög úr atvinnulífinu, ásamt Umhverfisstofnun. 

Með þessum viðburði er ætlunin að vekja athygli atvinnulífs á þeim sóknarfærum sem felast í að auka virði vöru og þjónustu með því að nýta plast með ábyrgum hætti í starfsemi sinni og draga úr plastnotkun þar sem það er mögulegt. Markmiðið er að atvinnulífið grípi til aðgerða til að draga úr notkun plasts og auka hlut endurunnins plasts. Sjá dagskrá að neðan. 

SKRÁ MIG Á VIÐBURÐ

Hlekkur á streymi verður sendur út þegar nær dregur.
 
DAGSKRÁ:

Ávarp 
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra 
 

Sögur úr atvinnulífinu 

  • Framleiðendur í fararbroddi í skilum og endurvinnslu 
    Einar Magnússon, forstjóri CCEP 
  • Ein jörð, einn sjór 
    Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri samfélagsábyrgðar, nýsköpunar og
    fjárfestatengsla hjá BRIM
  • Engin ein einföld lausn  
    Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Krónunnar 

 
Fróðleiksmolar úr kerfinu 

  • Erindið um það sem er bannað
    Gró Einarsdóttir, Sérfræðingur á sviði loftlagsmála og græns samfélags hjá Umhverfisstofnun 
  • Úrvinnslusjóður – hagrænir hvatar  
    Ólafur Kjartansson, framkvæmdastjóri Úrvinnslusjóðs 
  • Greiðum götu hringrásarhagkerfisins með samræmdum merkingum 
    Eygerður Margrétardóttir, formaður FENÚR 

 
Jákvæð verkefni og lausnir 

  • Fyrstu skrefin í átt að hringrásarhagkerfinu 
    Börkur Smári Kristinsson, rannsókna- og þróunarstjóri Pure North Recycling 
  • Plastlaus september  
    Þórdís V. Þórhallsdóttir, fræðslustjóri hjá Plastlausum september