Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi Rifós hf. á Kópaskeri. Um er að ræða landeldi á Röndinni, Kópaskeri þar sem hámarks lífmassi á hverjum tíma má ekki fara yfir 400 tonn.

Tillaga að starfsleyfi var auglýst á tímabilinu 26. febrúar 2021 til og með 29. mars 2021 þar sem hægt var að koma með athugasemdir vegna hennar. Engin athugasemd barst stofnuninni vegna tillögunnar á auglýsingatíma.
Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir starsleyfinu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Tengd skjöl
Ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi
Starfsleyfi Rifós hf. Kópaskeri