Stök frétt

Í samræmi við ákvæði starfsleyfis kísilvers PCC BakkaSilicon, boðar Umhverfisstofnun til opins kynningarfundar um niðurstöður mengunareftirlits og umhverfisvöktunar þriðjudaginn 8. júní kl. 12:00.

Fundurinn verður í fjarfundarsniði þetta árið og streymt í gegnum Teams forritið. Hlekkur á fundinn er hér neðar en viðburðurinn er jafnframt auglýstur á Facebook.

Gögn sem kynnt verða á fundinum eru aðgengileg á vefsvæði PCC BakkaSilicon á heimasíðu Umhverfisstofnunar.

Dagskrá fundar 
Fundarstjóri: Skúli Þórðarson

  • Niðurstöður eftirlits 2020 -  Halla Einarsdóttir frá Umhverfisstofnun
  • Niðurstöður Umhverfissvöktunar 2020 -  Eva Yngvadóttir frá Verkfræðistofunni Eflu.  

Tengill á fundarboðið

Vefsvæði PCC BakkaSilicon á heimasíðu Umhverfisstofnunar.