Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi Benchmark Genetics Iceland hf. Seljavogi, Reykjanesbæ. Um er að ræða landeldi þar sem hámarks lífmassi á hverjum tíma má ekki fara yfir 2.8 tonn.

Tillaga að starfsleyfi var auglýst á tímabilinu 18. maí 2021 til og með 16. júní 2021 þar sem hægt var að koma með athugasemdir vegna hennar. Engin athugasemd barst stofnuninni vegna tillögunnar á auglýsingatíma.

Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir starsleyfinu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Tengd skjöl