Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi Veiðifélags Eystri-Rangár, Eyjarlandi, Bláskógarbyggð. Um er að ræða landeldi þar sem hámarkslífmassi á hverjum tíma má ekki fara yfir 20 tonn og ársframleiðsla ekki yfir 20 tonn.

Tillaga að starfsleyfi var auglýst á tímabilinu 21. maí 2021 til og með 21. júní 2021 þar sem hægt var að koma með athugasemdir vegna hennar. Engin athugasemd barst stofnuninni vegna tillögunnar á auglýsingatíma.

Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir starsleyfinu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Tengd skjöl