Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi Háafells ehf. vegna sjókvíaeldis í Ísafjarðardjúpi. Um er að ræða eldi laxfiska með allt að 6.800 tonna hámarkslífmassa á hverjum tíma. Háafell ehf. hefur verið með starsleyfi fyrir 7.000 tonn af regnboga og þorski í Ísafjarðardjúpi sem fellur úr gildi með útgáfu þessa leyfis.

Umhverfisstofnun metur það svo að mengun verði aðallega í formi lífræns úrgangs (bæði í föstu og uppleystu formi) sem frá eldinu muni berast í viðtakann. Að mati stofnunarinnar geta áhrif mengunarinnar verið neikvæð á eldissvæðum en afturkræf ef eldi verður hætt. Eldið er kynslóðaskipt og svæði hvíld á milli kynslóða þannig að botninn jafni sig á milli. Umhverfisstofnun bendir á að í starfsleyfi stofnunarinnar fyrir starfseminni mun vera ákvæði þess efnis að stofnunin geti einhliða frestað útsetningu seiða, bendi niðurstöður vöktunar til þess að umhverfisaðstæður séu óhagstæðar á eldissvæði og það þarfnist frekari hvíldar.

Áhættumat Hafrannsóknastofnunar gerir ráð fyrir að hægt sé að vera með 12-14.000 tonna eldi á frjóum laxi í Ísafjarðardjúpi en samkvæmt því er ekki heimilt að ala frjóan lax innan Æðeyjar. Burðarþol Ísafjarðardjúps hefur verið metið af Hafrannsókanstofnun þar sem gert er ráð fyrir að hægt sé að vera með eldi með allt að 30.000 tonna lífmassa.

Umhverfisstofnu bárust tvær athugasemdir á auglýsingatíma vegna tillögunnar. Greinargerð fylgir starfsleyfinu þar sem farið er yfir þá þætti er snúa að útgáfu, athugasemdum og umfjöllun um umhverfisþætti er varða útgáfu starfsleyfisins.

Unnið hefur verið með Matvælastofnun að samræmingu við leyfisútgáfu rekstrarleyfis, en leyfin eru afhent rekstraraðila samtímis skv. 3. mgr. 4. gr. b. laga nr. 71/2008 um fiskeldi.

 

Tengd skjöl