Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi Silungs eldisstöðvar ehf. að Laxalóni, Reykjavík. Um er að ræða landeldi þar sem hármarks lífmassi á hverjum tíma má ekki fara yfir 15 tonn og ársframleiðsla ekki yfir 15 tonn.

Tillagan var auglýst á tímabilinu 28. maí til og með 28.júní þar sem hægt var að gera athugasemdir vegna hennar. Engin athugasemd barst stofnuninni vegna tillögunnar á auglýsingatíma.

Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir aftast í starfsleyfinu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Tengd skjöl
Ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi
Starfsleyfi Silungur eldisstöð ehf.