Stök frétt

Mynd: Sigríður Kristinsdóttir

Umhverfisstofnun, ásamt landeigendum, sveitarfélögunum Mosfellsbæ og Reykjavík, kynnir hér með áform um friðlýsingu Blikastaðakróar-Leiruvogs í samræmi við ákvæði laga nr. 60/2013 um náttúruvernd. 

Áform um friðlýsingu eru kynnt í samræmi við málsmeðferð 2. og 3. mgr. 36. gr. náttúruverndarlaga, sbr. 2. mgr. 38. gr. laganna.  

Frestur til að skila athugasemdum við áformin er til og með 10. ágúst 2021. Athugasemdum við áformin má skila á heimasíðu Umhverfisstofnunar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða með pósti til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.

Hér má finna frekari upplýsingar um svæðið og áformin.