Stök frétt

Gönguleiðin að Grænahrygg í Friðlandi að Fjallabaki hefur verið mikið í sviðsljósinu á undanförnu og margir leggja leið sína að hryggnum til að líta hann augum. Að því tilefni benda landverðir  friðlandsins á að gönguleiðin er krefjandi, leiðin er ekki stikuð, vaða þarf straumharðar ár á leiðinni og eru þær villugjarnar. Þeir sem hyggja á að ganga að Grænahrygg þurfa að hafa eftirfarandi í huga:

  • Að kynna sér gönguleiðina áður en lagt er af stað. Hafið samband við landverði í friðlandinu eða aðra staðkunnuga.
  • Hafa meðferðis nægt nesti fyrir dagsgöngu.
  • Vaða þarf straumharðar ár og því mikilvægt að hafa meðferðis vaðskó og gott að hafa göngustafi.
  • Gönguleiðin að Grænahrygg er á miðhálendinu þar sem allra veðra er von og því mikilvægt að hafa allan nauðsynlegan hlífðarfatnað meðferðis. 

Nánari upplýsingar hjá landvörðum í síma 822-4083, netfang fjallabak.ranger@ust.is 

Landverðir friðlandsins vilja einnig benda gestum á að ganga vel um svæðið og fara alls ekki upp á Grænahrygg eða aðrar viðkvæmar náttúruminjar.

Hugum að öryggi okkar, göngum vel um náttúruna og stöndum vörð um hana saman.