Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur gefið út tvö ný veggspjöld um losun sorps frá íslenskum skipum.

Veggspjöldin eiga að vera um borð í íslenskum skipum sem eru 12 m að lengd eða lengri samkvæmt viðauka V við MARPOL-samninginn.

Á veggspjöldunum koma fram um reglur sem gilda um losun sorps frá skipum, en almenna reglan er sú að losun sorps frá skipum í sjóinn er bönnuð nema lög og reglur kveði á um annað. Sorp skal flokkað í tiltekna úrgangsflokka og því skilað til móttökustöðva í landi. 

Annað veggspjaldið er ætlað áhöfnum skipa og hitt farþegum. 

Hægt er að nálgast eintök af veggspjöldunum í afgreiðslu Umhverfisstofnunar að Suðurlandsbraut 24.