Stök frétt


Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á breyttu starfsleyfi Fiskeldis Austfjarða hf. í Berufirði. Um er að ræða breytingu á svæðum og breytingu á hvíldartíma. Fyrir lá ákvörðun Skipulagsstofnunar vegna breytinganna frá 28. apríl 2021.
Einnig voru gerðar breytingar og uppfærslur á leyfinu til samræmis við nýjustu leyfi sem gefin eru út af stofnuninni.

Tillaga að breytingunni var auglýst á tímabilinu 31. maí 2021 til og með 29. júní 2021 þar sem hægt var að koma með athugasemdir vegna hennar. Athugasemd barst frá einum aðila á auglýsingatíma og er gerð grein fyrir henni í greinargerð sem fylgir aftast í starsleyfinu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Tengd skjöl
Ákvörðun um útgáfu Fiskeldi Austfjarða hf. Berufirði, breyting
Starfsleyfi Fiskeldis Austfjarða hf. Berufirði, breytt
Athugasemdir
Auglýsing tillögu