Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi fyrir færanlega malbikunarstöð af gerðinni Benninghoven MBA 160 með getu til að framleiða allt að 160 tonn/klst. af malbiki. Stöðin verður með breytilega staðsetningu til að sinna tímabundnum verkefnum.

Umhverfisstofnun auglýsti tillögu að starfsleyfinu á opinberan hátt á vefsíðu Umhverfisstofnunar á tímabilinu 7. júlí til og með 4. ágúst 2021 og gafst á því tímabili tækifæri til að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins yrði tekin. Engar athugasemdir bárust Umhverfisstofnun á auglýsingatímanum.

Minniháttar breytingar voru gerðar á starfsleyfinu frá auglýstri tillögu til að bæta skýrleika og er gerð nánari grein fyrir því í greinargerð með starfsleyfinu. Starfsleyfið er gefið út í samræmi við ákvæði laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit. Það öðlast þegar gildi og gilda til 20. ágúst 2037.

Auglýsing þessi er birt á fréttavefsvæði Umhverfisstofnunar en auk þess í sérstökum dálk fyrir opinberar birtingar á starfsleyfum sem stofnunin gefur út. Ákvörðun Umhverfisstofnunar um útgáfu starfsleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar Umhverfisstofnunar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Tengt skjal:
Starfsleyfi