Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur gefið út starfsleyfi fyrir Íslenska gámafélagið ehf. fyrir spilliefnamóttöku að Kalksléttu 1 á Esjumelum í Reykjavík. Rekstraraðila er heimilt að sinna starfseminni í sérútbúnu rými að Koparsléttu þar til aðstaða spilliefnamóttöku á Kalksléttu 1 verður tilbúin til notkunar. Starfsleyfið heimilar móttöku á allt að 1000 tonnum af spilliefnum á ári til undirbúnings til förgunar eða endurnýtingar, t.d. flokkunar, pökkunar, annars frágangs og geymslu.

Tillaga að starfsleyfi ásamt starfsleyfisumsókn og grunnástandsskýrslu var auglýst á vefsíðu Umhverfisstofnunar á tímabilinu 25. júní til og með 23. júlí sl. og gafst á þeim tíma tækifæri til að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin. Ein umsögn barst á auglýsingatíma sem gert er grein fyrir í greinargerð sem fylgir starfsleyfinu. Engar efnislegar breytingar voru gerðar á útgefnu starfsleyfi frá auglýstri tillögu.

Ákvörðun Umhverfisstofnunar um útgáfu starfsleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar Umhverfisstofnunar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Auglýsing þessi er birt á fréttavefsvæði Umhverfisstofnunar en auk þess í sérstökum dálki fyrir opinberar birtingar á starfsleyfum sem stofnunin gefur út.
Starfsleyfi þetta, sem gefið er út í samræmi við ákvæði laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit, laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og reglugerðar nr. 737/2003 um meðhöndlun úrgangs, öðlast þegar gildi og gildir til 6. september 2037.

Tengd skjöl:
Starfsleyfi