Stök frétt

Umhverfisstofnun boðar opinn kynningarfund vegna tillögu að starfsleyfi fyrir Rio Tinto hf. á Íslandi.

Tillagan gerir ráð fyrir að heimilt verði að framleiða í kerskálum álvers ISAL í Straumsvík allt að 460.000 tonn af áli á ári auk reksturs tilheyrandi málmsteypu, ker- og skautsmiðju og flæðigryfju fyrir kerbrot og tilgreindan eigin framleiðsluúrgang, auk þjónustu sem tengist framleiðsluferlum beint.

Fundurinn fer fram stafrænt þriðjudaginn 14. september 2021 klukkan 12:00 - 13:30.

Fundurinn verður aðgengilegur á slóðinni: https://ust.is/fundur20210914


Á fundinum verður fjallað almennt um starfsleyfi Umhverfisstofnunar og eftirlit. Einnig verður farið yfir þá starfsleyfistillögu sem nú liggur fyrir auk vöktunaráætlunar sem fyrirhugað er að gildi til 2029. Þá verður farið yfir niðurfellingu ákvæða í starfsleyfi um þynningarsvæði.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna eða vöktunaráætlunina skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 21. september 2021.

Hér má finna tillögu Umhverfisstofnunar að starfsleyfi ásamt fylgiskjölum (þar á meðal drög að vöktunaráætlun).