Stök frétt

Mynd: Christian Bickel
Umhverfisstofnun, í samstarfi við embætti forseta Íslands, Garðabæ, forsætisráðuneyti, umhverfis- og auðlindaráðuneyti og Minjastofnun Íslands, hefur unnið að undirbúningi friðlýsingar Bessastaðaness sem friðlands, í samræmi við 49. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd. Tillaga að friðlýsingu svæðisins er nú lögð fram til kynningar í samræmi við 39. gr. sömu laga.

Frestur til að skila athugasemdum við tillöguna er til og með 10. desember 2021. 

Hér má finna nánari upplýsingar um tillöguna