Stök frétt

Mynd tekin af Facebooksíðu Fiskeldis Austfjarða
Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Fiskeldi Austfjarða hf. í Stöðvarfirði. Um er að ræða sjókvíaeldi á ófrjóum laxi með allt að 7.000 tonna lífmassa á hverjum tíma.

Framkvæmdin fór í mat á umhverfisáhrifum og birti Skipulagsstofnun álit vegna þessa þann 4. júní 2021. Framkvæmdin rúmast innan burðarþolsmats Hafrannsóknarstofnunar fyrir Stöðvarfjörð. Í áliti Skipulagsstofnunar kemur fram að eldið muni hafa áhrif vegna uppsöfnunar næringarefna undir og nálægt kvíum og verði talsvert neikvæð. Áhrifin muni ráðast af aðstæðum á hverjum stað og verða að mestu afturkræf með nægjanlegri hvíld svæða og ef eldi verði hætt. Í því ljósi telur Skipulagsstofnun mikilvægt að svæði séu hvíld nægjanlega og tilhögun eldisins stjórnist af raunástandi á eldissvæðum. Umhverfisstofnun veitti umsagnir í matsferli framkvæmdarinnar.

Að mati Umhverfisstofnunar geta áhrif uppsöfnunar næringarefna orðið talsvert neikvæð á eldissvæðinu en afturkræf og munu því ekki hafa varanleg áhrif á ástand sjávar og botndýralíf. Eldissvæðið er hvílt milli kynslóða þannig að botninn jafni sig á milli. Umhverfisstofnun bendir á að í tillögu að starfsleyfi stofnunarinnar fyrir starfseminni eru ákvæði þess efnis að stofnunin geti einhliða frestað útsetningu seiða bendi niðurstöður vöktunar til þess að umhverfisaðstæður séu óhagstæðar á eldissvæði og það þarfnist frekari hvíldar. Gerð er krafa um vöktun svæða í starfsleyfi sem útfærð eru í vöktunaráætlun rekstaraðila sem auglýst er með tillögu.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merkt UST202001-200. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 25. nóvember 2021. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Tengd skjöl
Umsókn um starfsleyfi
Tillaga að starfsleyfi Fiskeldis Austfjarða hf. Stöðvarfirði
Álit Skipulagsstofnunar, matsskýrsla og viðaukar
Drög að vöktunaráætlun Fiskeldis Austfjarða hf. Stöðvarfirði