Stök frétt

Mynd tekin af vef Skútustaðahrepps

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi Skútustaðahrepps til urðunar óvirks úrgangs í Kollóttuöldu á Hólasandi. Starfsleyfið veitir heimild til urðunar á 370 tonnum af óvirkum úrgangi á ári. Urðunarstaðurinn telst vera í afskekktri byggð og eru því veittar undanþágur frá ýmsum sértækum kröfum sem að öðrum kosti eru gerðar til urðunarstaða.

Tillaga að starfsleyfi ásamt starfsleyfisumsókn var auglýst á vefsíðu Umhverfisstofnunar á tímabilinu 17. september til og með 17. október sl. og gafst á þeim tíma tækifæri til að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins yrði tekin. Engin umsögn barst á auglýsingatíma. Minniháttar efnislegar breytingar voru gerðar á útgefnu starfsleyfi frá auglýstri tillögu og er gerð grein fyrir breytingunum í greinargerð með starfsleyfinu.

Starfsleyfið er gefið er út í samræmi við ákvæði laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit, laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og reglugerðar nr. 737/2003 um meðhöndlun úrgangs. Það öðlast þegar gildi og gildir til 3. nóvember 2037.

Auglýsing þessi er birt á fréttavefsvæði Umhverfisstofnunar en auk þess í sérstökum dálki fyrir opinberar birtingar á starfsleyfum sem stofnunin gefur út. 
Ákvörðun Umhverfisstofnunar um útgáfu starfsleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar Umhverfisstofnunar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Tengt skjal: 
Starfsleyfi