Stök frétt

Undanfarið hefur verið unnið að gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir Kirkjugólf í Skaftárhreppi. Kirkjugólfið var friðlýst sem náttúruvætti árið 1987. 

Gerð áætlunarinnar var í höndum fulltrúa Umhverfisstofnunar, Skaftárhrepps og landeigenda.
Tillaga að áætluninni og aðgerðaáætlun í tengslum við hana hefur nú verið lögð fram til kynningar á heimasíðu Umhverfisstofnunar.

Kirkjugólf er lág jökul- og brimsorfin stuðlabergsklöpp þar sem endar lóðréttra stuðlabergssúlna ná upp úr jörðu. Það hefur jarðfræði- og sögulegt verndargildi sem og fræðslugildi.
Eins og áður segir liggja drög að áætluninni nú frammi til kynningar og er öllum frjálst að koma á framfæri athugasemdum og ábendingum vegna hennar.

Hér má lesa nánar um Kirkjugólf og skila inn ábendingum. Frestur til að skila inn ábendingum og athugasemdum varðandi tillöguna er til og með 15. desember 2021.