Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Sæbýli rekstur ehf. í Grindavík. Um er að ræða landeldi á sæeyrum með allt að 200 tonna hámarkslífmassa á hverjum tíma. Fráveituvatni frá eldisstöðinni verður veitt í fráveitukerfi Grindavíkurbæjar.

Framkvæmdin fellur ekki undir lög nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana og er því ekki háð umhverfismati.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merkt UST202104-261. Umsagnir verða birtar við útgáfu nema annars sé óskað. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 31. desember 2021. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Tengd skjöl
Umsókn um starfsleyfi
Tillaga að starfsleyfi Sæbýlis reksturs ehf. í Grindavík