Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur fallist á að framlengja gildistíma starfsleyfis TDK Foil Iceland á Akureyri.

TDK Foil Iceland ehf. sótti um nýtt starfsleyfi þann 18. ágúst sl. og var umsóknin samþykkt sem fullnægjandi þann 16. desember 2021.
Skv. 4. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir má útgefandi starfsleyfis framlengja gildistíma starfsleyfis meðan nýtt starfsleyfi er í vinnslu, að hámarki til eins árs, hafi fullnægjandi umsókn borist útgefanda. Áform um framlengingu voru auglýst á heimasíðu Umhverfisstofnunar 16. desember til og með 21. desember.

Fyrra starfsleyfi TDK Foil Iceland ehf. rennur út 31. desember 2021 og mun því framlengingin sem hér er veitt gilda þar til nýtt starfsleyfi er gefið út eða í síðasta lagi til 31. desember 2022.