Miðvikudaginn 16. mars kl 12:15 fer fram opinn fyrirlestur um áhrif nagladekkja á loftgæði og gatnaslit.
Í fyrirlestrinum veltum við upp eftirfarandi spurningum:
Við fjöllum um svifryksmengun frá vegyfirborði og áhrif umferðar á magn svifryks. Við beinum sjónum að notkun nagladekkja, gatnaþrifum og rykbindingu.
Opið verður fyrir spurningar frá þátttakendum.
Fyrirlesturinn flytur Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur í teymi loftgæða og losunarheimilda hjá Umhverfisstofnun.
Hluti af stefnu Umhverfisstofnunar er að stuðla að grænu og framsýnu samfélagi. Í því felst m.a. að veita góð ráð varðandi umhverfisvænan lífsstíl.
Ekki missa af áhugaverðum fyrirlestri um umhverfismál á mannamáli!
Tengt efni: