Stök frétt


Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi fyrir Hið Norðlenzka Styrjufjelag ehf. Ólafsfirði. Um er að ræða landeldi á styrju og fellur starfsemin undir skráningaskyldu hjá Matvælastofnun. 

Tillaga að starfsleyfi var auglýst á tímabilinu 25. febrúar 2022 til og með 28. mars 2022 þar sem hægt var að koma með athugasemdir vegna hennar. Engin athugasemd barst vegna tillögunnar á auglýsingatíma. Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir aftast í starsleyfinu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Ákvörðun Umhverfisstofnunar um útgáfu starfsleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Tengd skjöl
Ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi fyrir Hið Norðlenzka Styrjufjelag ehf.
Starfsleyfi Hins Norðlenzka Styrjufjelags ehf.
BAT for fiskopdrætt i Norden