Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur fallist á að framlengja gildistíma starfsleyfis Öggs ehf. Hjaltadal.

Öggur ehf. sótti um nýtt starfsleyfi þann 25. maí sl. og var umsóknin samþykkt sem fullnægjandi þann 3. júní 2022.

Skv. 4. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir má útgefandi starfsleyfis framlengja gildistíma starfsleyfis meðan nýtt starfsleyfi er í vinnslu, að hámarki til eins árs, hafi fullnægjandi umsókn borist útgefanda. Áform um framlengingu voru auglýst á heimasíðu Umhverfisstofnunar 3. júní til og með 8. júní.

Fyrra starfsleyfi Öggs ehf. rann út 6. júní 2022 og mun því framlengingin sem hér er veitt gilda þar til nýtt starfsleyfi er gefið út eða í síðasta lagi til 6. júní 2023.