Vinna við stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Látrabjarg er í fullum gangi.
Fulltrúar Umhverfisstofnunar í samstarfshópnum um gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir Látrabjarg fóru nýverið í vettvangsferð um svæðið. Það voru Edda Kristín Eiríksdóttir, sérfræðingur á sunnanverðum Vestfjörðum og Þórdís Björt Sigþórsdóttir, teymisstjóri í teymi friðlýsinga og áætlana.
Mynd: Edda Kristín Eiríksdóttir, sérfræðingur Umhverfisstofnunar á sunnanverðum Vestfjörðum.
Fulltrúar Umhverfisstofnunar, Vesturbyggðar og landeigenda vinna að gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir Látrabjarg.
Markmið með stjórnunar- og verndaráætlun er að marka stefnu fyrir framtíð Látrabjargs og hvernig viðhalda skuli verndargildi þess.
Látrabjarg var friðlýst sem friðland í mars árið 2021. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda sérstætt lífríki Látrabjargs og búsvæði fugla og viðhalda náttúrulegu ástandi svæðisins og landslagi.
Mynd: Salernin á Brunnum eru rétt utan friðlandsmarka en þjóna gestum þess.
Samkvæmt 81. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd er eitt af hlutverkum Umhverfisstofnunar að annast gerð stjórnunar- og verndaráætlana fyrir friðlýst svæði.
Ljósmyndari: Þórdís Björt Sigþórsdóttir.
Tengt efni:
Mynd: Edda Kristín Eiríksdóttir, sérfræðingur á sunnanverðum Vestfjörðum og Þórdís Björt Sigþórsdóttir, teymisstjóri í teymi friðlýsinga og áætlana.