Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að endurnýjuðu starfsleyfi vegna landeldis Tungusilungs ehf. í Tálknafirði. Um er að ræða landeldi á bleikju með hámarks lífamassa allt að 200 tonn og hámark framleiðslu allt að 200 tonnum. 

Að mati Umhverfisstofnunar eru helstu áhrif vegna eldisins losun næringarefna, bæði á föstu formi og uppleystu, í viðtakann. Áætluð losun næringarefna verður undir þeim mörkum sem almennt er miðað við varðandi losun í sjó með þeirri hreinsun sem rekstaraðili hyggst notast við. Hægt er að endurskoða fyrirkomulag fráveitu frá eldinu og gera auknar kröfur bendi mælingar til að hreinsun sé ábótavant samkvæmt mælingum.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merkt UST202107-207, athugasemdir verða birtar við útgáfu nema annars sé óskað.

Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 8. nóvember 2022.
Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Tengd skjöl: