Umhverfisstofnun hefur uppfært stefnu sína til ársins 2025. Hlutverk Umhverfisstofnunar er að þjónusta fólk og náttúru í þágu umhverfisverndar. Stefna Umhverfisstofnunar 2023 - 2025
Í stefnumótunarvinnunni var leitast við að skerpa á markmiðum stofnunarinnar og samræma við stefnumótun ríkisaðila. Leitað var ábendinga hagaðila og fagráðuneytis.
Starfsfólk Umhverfisstofnunar tók virkan þátt í stefnumótuninni og miðlaði af sérþekkingu sinni og áhuga á umhverfisvernd.
„Við erum svo lánsöm að starfsfólkið okkar brennur fyrir umhverfisvernd og það myndaðist mikil og góð stemning í stefnuvinnunni. Aukinn árangur í loftslagsmálum brennur á samfélaginu og við viljum nýta okkar þekkingu og krafta sem allra best til að Ísland standi við skuldbindingar sínar. Ábyrg auðlindanýting í þágu náttúru og heilnæmi almennings skín vel í gegn í markmiðum okkar til næstu ára“ segir Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri.
Helstu áherslur í stefnunni eru:
Undir hverri áherslulínu í stefnunni eru markmið og mælikvarðar um árangur.
Umhverfisstofnun gefur út ársáætlun sem gefur yfirlit yfir regluleg verkefni stofnunarinnar og stefnuverkefni hverju sinni. Stefnuverkefni eru umbóta- og þróunarverkefni sem byggja á tillögum sérfræðiteyma Umhverfisstofnunar og ásetningi um stöðugar umbætur.
Umhverfisstofnun er með þrjú vottuð gæðakerfi: ISO 9001, ISO 14001 og jafnlaunavottun sem styðja við starfsemina. Starfsmenn eru virkir í gæðastjórnun og innri úttektum á gæðaferlum.
Stefna Umhverfisstofnunar er sett upp eins og fjall. Framtíðarsýn Umhverfisstofnunar er efst á toppnum og byggir á því að virðing fyrir náttúrunni sé samofin allri ákvarðanatöku í samfélaginu.
Við stefnum á toppinn!
Mynd: Starfsfólk Umhverfisstofnunar á toppi Snæfellsjökuls vorið 2022.