Kynning á stjórnunar- og verndaráætlun fyrir friðlandið í Flatey á Breiðafirði
Fulltrúar Umhverfisstofnunar, Reykhólahrepps, íbúa og framfarafélags Flateyjar hafa undanfarið unnið að gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir friðlandið í Flatey á Breiðafirði.
Svæðið var fyrst friðlýst árið 1975. Friðlýsingin var endurskoðuð og friðlandið stækkað árið 2021.
Áætlunin er sett fram í samræmi við 81. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd.