Umhverfisstofnun mun standa fyrir fræðslufundi 3. maí næstkomandi kl. 9 - 12 í sýnatökum á ýmsum líffræðilegum og eðlisefnafræðilegum gæðaþáttum í strandsjó, straumvötnum og stöðuvötnum.
Um er að ræða t.d. kortlagningu á vatnaplöntum og þörungum í strandsjó, sýnatökur á hryggleysingjum, mælingar á blaðgrænu og fleira. Fræðslan mun nýtast öllum fagaðilum sem þurfa að taka sýni eða kortleggja vistkerfi vatna.
Um samræmda aðferðarfræði er að ræða vegna innleiðingar laga um stjórn vatnamála og framkvæmd vatnaáætlunar Íslands.
Fræðslan er eingöngu rafræn og eru áhugasamir beðnir um að skrá sig á slóðina: Skráning á fræðslufund um sýnatökur eigi síðar en 1. maí. Með skráningu er hægt að tryggja að upplýsingar berist til þeirra sem skráðir eru. Hlekkur mun berast með sér fundarboði öllum sem eru skráðir daginn áður. Öll fræðslugögn ásamt upptökum af kynningum verða aðgengilegar á www.vatn.is að fundinum loknum. Sjá dagskrá fundarins hér fyrir neðan.
Fyrirspurnir má senda á netfangið: vatn@ust.
Almenn kynning og flokkun á ástandi vatnshlota (40 mín.)
09:00 – 9:20 Fyrirkomulag fræðslufundar og kynning á stjórn vatnamála
Marianne Jensdóttir Fjeld, Umhverfisstofnun
09:20 – 9:40 Kynning um ástandsflokkun vatnshlota
Eydís Salome Eiríksdóttir, Hafrannsóknastofnun
Kynningar á sýnatökum í strandsjó (60 mín.)
09:40 – 10:00 Mælingar á blaðgrænu og næringarefnum
Sara Harðardóttir, Hafrannsóknastofnun
10:00 – 10:10 Botnlægir sjávarhryggleysingjar
Steinunn Hilma Ólafsdóttir, Hafrannsóknastofnun
10:10 – 10:20 Þörungar á hörðum botni
Lilja Gunnarsdóttir, Hafrannsóknastofnun
Hlé í 10 mín.
Kynningar á sýnatökum í straum- og stöðuvötnum (80 mín.)
10:30 – 10:50 Mælingar á blaðgrænu
Ragnhildur Þ. Magnúsdóttir, Hafrannsóknastofnun
10:50 – 11:10 Hryggleysingjar og púpuhamir rykmýs
Jón S. Ólafsson, Hafrannsóknastofnun
11:10 – 11:30 Vatnssýnatökur og mælingar á eðlisefnafræðilegum gæðaþáttum
Eydís Salome Eiríksdóttir, Hafrannsóknastofnun
11:30 – 11:50 Gróðurkönnun í stöðuvötnum
Þóra Hrafnsdóttir, Náttúrufræðistofnun Íslands