Strandhreinsun Íslands er 5 ára átak í hreinsun strandlengju Íslands af plasti og öðrum úrgangi.
Átakið byggir á aðgerð 17 í aðgerðaáætlun stjórnvalda í plastmálefnum, Úr viðjum plastsins. Hreinleiki sjávar er Íslandi afar mikilvægur og strandhreinsanir eiga þátt í að halda hafinu hreinu.
Strandlengjan er um 5000 km að lengd og er nauðsynlegt að framkvæma hreinsun hennar með kerfisbundnum hætti.
Átakið var sett af stað af Umhverfisráðuneytinu árið 2021 og stendur til 2025.
Allir geta tekið þátt í verkefninu. Almenningur, vinnustaðir, félagasamtök, skólahópar og fleiri.
Fara inn á: strandhreinsun.is.
Taka frá bút af strandlengju Íslands.
Skrá niðurstöður að hreinsun lokinni.
Niðurstöður allra verða sýnilegar á korti.
Lögaðilar (s.s. félagasamtök eða áhugamannafélög) geta sótt um styrk til verkefna sem felast í hreinsun strandlengjunnar.
Umhverfisstofnun úthlutur styrkjum árlega næstu þrjú árin. Umsóknarfrestur fyrir úthlutun ársins 2023 til 16. júní.