Stök frétt

Mynd fengin af heimasíðu rekstraraðila
Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi fyrir Orku Náttúrunnar til reksturs hreinsivirkis við Hellisheiðarvirkjun.

Tillaga að nýju starfsleyfi var auglýst á tímabilinu 12. júní til og með 11. júlí 2023 þar sem hægt var að koma með athugasemdir vegna hennar. Engar umsagnir bárust á auglýsingartímanum.

Með starfsleyfinu fylgir greinargerð þar sem gerð er grein fyrir ákvörðun Umhverfisstofnunar.
Ákvörðun Umhverfisstofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar Umhverfisstofnunar.

Tengd skjöl
Starfsleyfi