Nú fer fram vinna við stjórnunar- og verndaráætlun lunda. Umhverfisstofnun ber ábyrgð á verkefninu og vinnur áætlunina í samstarfi við Náttúrufræðistofnun Íslands og hagsmunaaðila.
Fyrr á árinu komu hagsmunaaðilar saman í tveggja daga vinnustofu sem leidd var af Dr Fred Johnson, bandarískum sérfræðingi í veiðistjórnun og líkanagerð. Markmið vinnustofunnar var að hefja verkefnið, móta sameiginlega sýn hagsmunaaðila og tilgreina helstu stefnumótandi þætti. Einnig hóf hópurinn vinnu við að greina mögulegar verndar- og veiðistjórnunaraðgerðir.
Hér má finna samantekt um vinnustofuna og þá vinnu sem farið hefur fram við verkefnið síðustu mánuði.