Frétt


Eindagi greiðslu úthlutaðs hreindýraveiðileyfis var að þessu sinni framlengdur til 5. maí. Borga þarf kröfu í heimabanka fyrir kl. 21.00 þriðjudaginn 5. maí  Þeir sem ekki greiða kröfuna fyrir tilskilinn tíma hafna þar með úthlutuðu leyfi.  Krafa frá Ríkissjóðsinnheimtu á að vera í heimabanka þeirra sem hafa fengið úthlutun, ekki voru sendir út greiðsluseðlar. Ef menn finna ekki kröfuna þá er hægt að millifæra eftir neðangreindum upplýsingum. Best er samt að viðkomandi borgi útsenda kröfu, ef er millifært þarf að senda bankakvittun á netfangið joigutt@ust.is.
 
Reikningsnúmer:  0001-26-25335  
Kennitala móttakanda:  5402696459
Upphæð greiðslu:   86.000 fyrir kýr, 150.000 fyrir tarf.
Skýring greiðslu:  Kennitala þess sem er með úthlutað leyfi.
 
Mikilvægt er að greiða ekki á seinustu stundu og fylgjast með því að greiðslur sem hafa verið settar í sjálfvirkar greiðslur á eindaga greiðist.

11. maí verður farið í að endurúthuta þeim leyfum sem skilað verður inn, til næstu manna á biðlistum