Frétt


Eindagi greiðslu úthlutaðs hreindýraveiðileyfis er í dag 15. apríl. Greiða þarf kröfu í heimabanka fyrir kl. 21.00 fimmtudaginn 15. apríl. Þeir sem ekki greiða kröfuna fyrir tilskilinn tíma hafna þar með úthlutuðu leyfi. 

Krafa frá Ríkissjóðsinnheimtu er í heimabanka þeirra sem hafa fengið úthlutun, ekki voru sendir út greiðsluseðlar. Ef menn finna ekki kröfuna þá er hægt að millifæra eftir neðangreindum upplýsingum en það þarf þá að gerast áður en greiðslufrestur rennur út.

Tryggast er samt að viðkomandi borgi útsenda kröfu, en ef er millifært þarf að senda bankakvittun á netfangið joigutt@ust.is.

Reikningsnúmer:  0001-26-25335  
Kennitala móttakanda:  5402696459
Upphæð greiðslu:   86.000 fyrir kýr, 150.000 fyrir tarf.
Skýring greiðslu:  Kennitala þess sem er með úthlutað leyfi.

Mikilvægt er að greiða ekki á síðustu stundu og fylgjast með því að greiðslur sem hafa verið settar í sjálfvirkar greiðslur á eindaga greiðist.

Fljótlega eftir að greiðslufrestur er útrunnin er farið í að endurúthuta þeim leyfum sem ekki verða greidd, til næstu manna á biðlistum