Stök frétt

Höfundur myndar: Kristinn Már Ársælsson

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir urðunarstað Fljótsdalshéraðs á Tjarnarlandi, Fljótsdalshéraði. Samkvæmt tillögunni verður heimilt að taka á móti og urða allt að 2500 tonn af úrgangi á ári og áframvinna moltu. Samkvæmt starfsleyfistillögunni verður gildistími starfsleyfis til næstu 16 ára. Tillagan, ásamt starfsleyfisumsókn og fylgigögnum, mun liggja frammi til kynningar í afgreiðslu bæjarskrifstofu Fljótsdalshéraðs, Lyngási 12, Egilsstöðum, til 25. júní 2015. Starfsleyfistillögu og önnur gögn má einnig nálgast á heimasíðu Umhverfisstofnunar. Öllum er frjálst að gera athugasemdir við starfsleyfistillöguna en þær skulu vera skriflegar, undirritaðar með nafni og heimilisfangi og sendar Umhverfisstofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 25. júní 2015.

Tengd gögn