Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu leyfis Háskóla Íslands, þann 8. nóvember 2024, fyrir afmarkaða notkun erfðabreyttra örvera, í rannsóknarhúsnæði við Klettagarða 6, 104 Reykjavík.
Um er að ræða leyfi fyrir afmarkaðri notkun erfðabreyttra örvera af flokki 1, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 275/2002 um afmarkaða notkun erfðabreyttra örvera, sem felur í minnstu mögulega áhættu fyrir fólk og umhverfi. Nánari upplýsingar um starfsemina má finna í greinargerð með leyfinu.

Leyfið er gefið út í samræmi við lög nr. 18/1996 um erfðabreyttar lífverur og reglugerð nr. 275/2002 um afmarkaða notkun erfðabreyttra örvera. Leyfið hefur þegar tekið gildi og gildir til 8. nóvember 2040.

Þar sem um afmörkunarflokk 1 er að ræða var ekki þörf á umsögn ráðgjafanefndar um erfðabreyttar lífverur. Vinnueftirlitið var látið vita af umsókninni og gerði ekki athugasemd við umsókn rekstraraðila varðandi heilbrigðissjónarmið né við flokkun starfseminnar í afmörkunarflokk 1.
Umsókn rekstraraðila er meðfylgjandi þessari tilkynningu.

Umhverfisstofnun bendir á að skv. 29. gr. laga nr. 18/1996 um erfðabreyttar lífverur sæta ákvarðanir Umhverfisstofnunar er varða veitingu leyfis, kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá auglýsingu ákvörðunarinnar, skv. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. 

Fylgiskjöl: 
Leyfi með greinargerð
Umsókn rekstraraðila
Umsögn Vinnueftirlitsins