Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Thor landeldi ehf. vestan Þorlákshafnar. Um er að ræða landeldi á laxfiskum með allt að 13.150 tonna hámarkslífmassa.

Framkvæmdin er háð umhverfismati skv. lögum nr. 111/2021. Álit Skipulagsstofnunar lá fyrir 17. júlí 2024 en í álitinu kemur fram að „áhrif fráveitu og úrgangs á viðtaka frá frárennsli og það magn fráveituvatns verði hlutfallslega lítið miðað við rúmmál þess viðtaka sem um ræðir, sem í þessu tilfelli er straumþungt haf og því má búast við að þynning verði mikil. Með hliðsjón af áformum framkvæmdaraðila telur Skipulagsstofnun að áhrif frárennslis á viðtakann/sjó og lífríki fjöru séu ekki líkleg til að verða veruleg, óháð valkostum“. Að mati Skipulagsstofnunar verða helstu áhrif vegna eldisins á grunnvatn og ríkir talsverð óvissa um þau áhrif auk samlegðaráhrifa með annarri núverandi og fyrirhugaðri starfsemi á svæðinu. Mælst er til þess að leyfisveiting Orkustofnunar verði áfangaskipt til að hægt sé að vakta og meta áhrif á grunnvatn samhliða uppbyggingu. Umhverfisstofnun tekur undir þetta mat Skipulagsstofnunar.

Varðandi þá þætti sem snúa að starfsleyfi verða losun næringarefna í viðtakann, bæði á föstu formi og uppleystu, helstu áhrif eldisins að mati Umhverfisstofnunar. Viðtakinn verður vaktaður í samræmi við kröfur í vöktunaráætlun fyrirtækisins sem byggja á lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Drög að vöktunaráætlun er auglýst með starfsleyfistillögunni. Hægt er að endurskoða fyrirkomulag hreinsunar á fráveitu frá eldinu og gera auknar kröfur bendi mælingar til þess að hreinsun sé ábótavant. Þá er einnig hægt að endurskoða fyrirkomulag vöktunar út frá losun og áhrifum á vatnshlotið sem rekstraraðili losar í.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun ust@ust.is merkt UST202403-062. Athugasemdir verða birtar við útgáfu nema annars sé óskað. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018. 
Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 30. desember 2024.

Tengd skjöl
Umsókn um starfsleyfi
Tillaga að starfsleyfi fyrir Thor landeldi ehf.
Drög að vöktunaráætlun
Mat á áhrifum á vatnshlot
Álit Skipulagsstofnunar