Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um breytingu á starfsleyfi Íslenska kalkþörungafélagsins ehf., Bíldudal.

Um er að ræða breytingu á gr. 3.3 í starfsleyfinu þar sem að krafan um uppsetningu vindbrjóta innan þriggja ára frá útgáfu starfsleyfisins er felld niður. 

Tillaga að breyttu starfsleyfi var auglýst opinberlega á vefsíðu Umhverfisstofnunar á tímabilinu 8. nóvember til og með 9. desember 2024 þar sem hægt var að koma með athugasemdir vegna hennar. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatímanum.

Ákvörðun Umhverfisstofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustu hætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála.

Tengd skjöl
Ákvörðun um breytingu á starfsleyfi Íslenska kalkþörungafélagsins ehf., Bíldudal