15.03.2024
Tillaga að friðlýsingu Fjaðrárgljúfurs í Skaftárhreppi
Umhverfisstofnun, í samvinnu við landeigendur Heiðar og Skaftárhrepp leggur fram til kynningar tillögu að friðlýsingu Fjaðrárgljúfurs, að hluta, sem náttúruvættis. Tillagan er unnin af samstarfshóp um friðlýsinguna en í hópnum sitja fulltrúar Umhverfisstofnunar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, Minjastofnunar, Skafárhrepps ásamt fulltrúa landeigenda.