Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur móttekið umsókn Hringrásar ehf. um nýtt starfsleyfi fyrir móttöku- og endurvinnslustöð að Álhellu 1 í Hafnarfirði. 

Rekstraraðili sækir m.a. um heimild til að safna, vinna og flytja út botamálma og hjólbarða.

Umhverfisstofnun hefur farið yfir umsóknina og metið hana fullnægjandi. Á næstunni verður unnin tillaga að starfsleyfi og í framhaldinu er gert ráð fyrir að hún verið auglýst í fjórar vikur. 
Öllum gefst tækifæri til að koma með athugsemdir á auglýsingatíma áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.