Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu starfsleyfis fyrir starfsstöð Stjörnueggja hf. að Vallá, Kjalarnesi. Rekstraraðili hefur heimild til að reksturs eggjabús með allt að 75.000 stæðum fyrir varphænur og heimild til stækkunar í allt að 95.000 stæði fyrir varphænur að uppfylltum skilyrðum.

Tillaga að nýju starfsleyfi var auglýst á tímabilinu 19. september til og með 18. október 2024 þar sem hægt var að koma með athugasemdir vegna hennar. Engar athugasemdir bárust vegna tillögunnar á auglýsingatíma.

Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir aftast í starfsleyfinu, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Ákvörðun Umhverfisstofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustu hætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála.

Tengd skjöl
Starfsleyfi Stjörnueggja hf., Vallá.