Stök frétt

Umhverfisstofnun áformar að framlengja starfsleyfi Gallon ehf. í Örfirisey í Reykjavík, sem gildir fyrir rekstur olíubirgðastöðvar. Umhverfisstofnun er heimilt að framlengja starfsleyfi rekstraraðila í samræmi við 4. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Framlenging á starfsleyfi er heimil til eins árs eða til 31. janúar 2025.
 
Athugasemdir við að leyfið sé framlengt skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun ust@ust.is merkt UST202401-158. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 26. janúar 2024.
 
Hér er hægt að skoða starfsleyfið sem áformað er að framlengja