Stök frétt

Mynd: Krystian Tambur - Unsplash

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að breytingu á starfsleyfi Fiskeldisins Haukamýri ehf. Breytingin snýr aðallega að auknu umfangi en rekstraraðili hefur verið með heimild til landeldis á allt að 450 tonnum. Með breytingunni verður rekstaraðila heimilt að vera með í eldi allt að 850 tonn af lífmassa á hverjum tíma.

Breytingin fór í matsskyldufyrirspurn til Skipulagsstofnunar sem birti ákvörðun sína þann 19. desember 2022 að framkvæmdin skyldi ekki háð mati á umhverfisáhrifum þar sem hún væri ekki líklegt til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif.
Að mati Umhverfisstofnunar eru þeir þættir er snúa að starfsleyfinu vegna losunar næringarefna bæði á föstu og uppleystu formi. Áætluð losun næringarefna verður undir þeim mörkum sem almennt er miðað við varðandi losun í sjó með þeirri hreinsun sem fyrirtækið hyggst notast við. Hægt er að endurskoða fyrirkomulag fráveitu frá eldinu og gera auknar kröfur bendi mælingar til þess að hreinsun sé ábótavant. 

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun, ust@ust.is, merkt UST202305-019. Umsagnir verða birtar við útgáfu nema annars sé óskað.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 22. janúar 2024. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Tengd skjöl
Umsókn um starfsleyfi Fiskeldið Haukamýri ehf.
Tillaga að breytingu á starfsleyfi Fiskeldið Haukamýri ehf.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu
Vöktunaráætlun Fiskeldisins Haukamýri ehf.
Mat á áhrifum á vatnshlot