Stök frétt

Umhverfisstofnun auglýsir áform um útgáfu bráðabirgðaheimildar fyrir Ræktunarsamband Flóa og Skeiða og HS Orku vegna lághitaborana á Reykjanesi.

Í  umsókninni kemur fram að á vegum Almannavarna er verið að undirbúa borun eftir lághitavatni á utanverðum Reykjanesskaga sem neyðarráðstöfun ef orkuver í Svartsengi yrði óstarfhæft. Þetta er liður í því að bregðast við þeirri yfirvofandi vá ef hraunflæði ógnar afhendingu heits vatns til byggða á Reykjanesi. Þrjár boranir eru fyrirhugaðar, ein hola á Njarðvíkurheiði – við hlið vegar að Stapafelli, ein á svæði við Vogshól, rétt við Njarðvíkurlögnina/vatnslögn úr Lágum og ein hola á svæði við Rosmhvalanes/Rockville (Suðurnesjabær).

Athugasemdafrestur við auglýsinguna er til kl 12:00 þann 22. febrúar 2024. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast stofnuninni á netfangið ust@ust.is, merktar UST202402-345.