Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur móttekið umsókn um nýtt starfsleyfi fyrir Reykjanesbæ vegna móttökustaðar, geymslusvæðis og urðunarstaðar fyrir óvirkan úrgang á Njarðvíkurheiði. Umsóknin barst 15. febrúar síðastliðinn.
Rekstraraðili sækir um heimild til að urða 15 þúsund tonn af óvirkum úrgangi á ári. Á næstunni verður unnin tillaga að starfsleyfinu og í framhaldinu er gert ráð fyrir að hún verði auglýst í fjórar vikur.

Öllum gefst tækifæri á að koma með athugasemdir á auglýsingatíma áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.