Stök frétt

Umhverfisstofnun boðar til borgarafundar þar sem kynnt verður tillaga að nýju starfsleyfi Sorpstöðvar Suðurlands bs. Sérfræðingar Umhverfisstofnunar kynna tillögurnar og gefst fundargestum tækifæri til að koma með athugasemdir og bera upp spurningar.

Fundurinn verður haldinn á Hóteli Eldhestum, þriðjudaginn 2. júní kl. 17:00.

Athugasemdir við umsókn eða tillögu skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 12. júní 2009.

Allir velkomnir.