Stök frétt

Aðfaranótt 11.nóvember sl. var kísilverksmiðja Sameinaðs Sílikons hf. (United Silicon) í Helguvík gangsett, en um er að ræða fyrstu verksmiðju þessarar tegundar sem sett er upp á Íslandi. Umhverfisstofnun gaf út starfsleyfi fyrir verksmiðjuna í október 2014 og fer með eftirlit með starfsemi hennar.

Umhverfisstofnun hefur á síðustu dögum borist fjöldi ábendinga, annarsvegar um reyk frá verksmiðjunni og hinsvegar um viðvarandi brunalykt. Fulltrúar stofnunarinnar hafa verið í sambandi við fyrirtækið til að fá nánari upplýsingar og hafa tvívegis á síðustu dögum farið í fyrirvaralaust eftirlit í verksmiðjuna til að fá betri og nákvæmari upplýsingar og einnig til að staðfesta umrædda lykt eða reyklosun. Fyrirtækið er í byrjunarfasa og búnaður er enn í prófun. Skýringar á þeim reyk sem sést hefur má rekja til þess að enn er verið að finna réttar stýringar á afsogi frá ofnum og reykhreinsibúnaði. Lyktin stafar fyrst og fremst af ófullkomnum bruna á lífrænum efnum (timburflís) þar sem ofninn er enn ekki komin á það stig að vera komin í jafnvægi og ná því hitastigi þar sem von er á að lyktin eyðist.

Loftgæðamælar umhverfis verksmiðjuna eru þrír og er staðsetning þeirra ákveðin út frá loftdreifilíkönum og vindlíkani (vindrósum) með það að markmiði að fanga örugglega þau mengunarefni sem berast frá starfseminni. Hægt er að fylgjast með loftgæðamælingum í rauntíma á heimasíðu orkurannsókna Keilis www.andvari.is Umhverfisstofnun fylgist vel með umræddum mælingum og frá því að verksmiðjan fór í gang hafa mælingar á mengunarefnum aldrei farið yfir skilgreind viðmiðunarmörk vegna heilsuverndar manna. Hægt er að sjá einstaka toppa en gildi þeirra eru öll undir ofangreindum mörkum en þau má finna í meðfylgjandi töflu.

Hægt er að nálgast upplýsingar um starfsleyfi fyrirtækisins, niðurstöður eftirlits og gögn tengd fyrirtækinu inni á heimasíðu Umhverfisstofnunar http://www.ust.is/einstaklingar/mengandi-starfsemi/verksmidjur/sameinad-silikon-hf/. Þá er hægt að senda inn ábendingar undir nafni eða nafnlaust á heimasíðu umhverfisstofnunar www.ust.is eða á netfangið ust@ust.is.

Tafla: Upplýsingar um viðmiðunarmörk mengandi efna sem mæld eru í loftgæðamælum umhverfis kísilverksmiðju Sameiðnaðs Sílikons. Viðmiðunarmörkin koma úr reglugerð 920/2016 um brennisteinsdíoxíð, köfnunarefnisdíoxíð og köfnunarefnisoxíð, bensen, kolsýring, svifryk og blý í andrúmsloftinu, styrk ósons við yfirborð jarðar og um upplýsingar til almennings.

Meðaltími

Viðmiðunarmörk vegna heilsuverndar manna

Brennisteinsdíoxíð

 

Ein klukkustund

350 µg/m³

Einn sólarhringur

125 µg/m³

Köfnunarefnisdíoxíð

 

Ein klukkustund

200 µg/m³

Einn sólarhringur

75 µg/m³

Almanaksár

40 µg/m³

PM10

 

Einn sólarhringur

50 µg/m³

Almanaksár

40 µg/m³

PM2.5

 

Almanaksár

20 µg/m³